Perlu skvísur
Leikir
28.09.2006 14:35:50 / Rori

Dauð!!!!

Ég hef einnig sagt mig skilið við þessa síðu..........flutt á nýtt blogg

rori.bloggar.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 13:56:07 / Eva Dögg

Myndir :D :D

Jæja þar sem þessi síða er alveg dauð, er ég búin að segja mig útúr henni....þið getið fylgst með bullinu á síðunum ....  blog.central.is/bjalkinn eða á theladies.bloggar.is .... en allavega þá eru myndirnar inn á blog.central.is/bjalkinn ...myndir síðan í sumar og grillveislunni og fleira....


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 13:39:26 / Vigdís

Dagur í vinnunni

Jæja þetta er nú ekki hægt.....

Þessi síða hjá okkur er alveg að lognast út af stelpur hvað er í gangi?????
Gellan var bara að byrja í þessari líka frábæru chill vinnu 8) hehe enginn vinna um helgar.....heheheh

Mig langar bara að formlega segja til hamingju við hana Marlenu okkar og Ægi sem voru að trúlofa sig um daginn, ekkert smá sætt :haha: algjörar snúllur.....

Hvað varð svo um þessa ferð til útlanda hjá okkur Rori var ekki verið að spá í að fara á sólarströnd með nýju bikiníin okkar???? Langar geggjað að fara til spánar, ég veit hreinlega ekki hvað það er með mig og þetta land ég elska það..... en hvað segirðu ágúst hlómar vel.......

Heyrru síminn er að hringja hjá kellunni þannig ég verð nú að svara.....

Heyrumst!


» 10 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 10:46:55 / Vigdís

smá pæling

Við stelpurnar ákváðum að fara á kaffihús í gær svona til að hittast til tilbreytingar, höfum ekki verið allt of duglegar í því að undanförnu :haha:, en ég, sunna og iðunn ákváðum að skella okkur á kaffihús og fórum bara upp í Perlu þar sem að Rori litla var að vinna8| er alltaf að vinna núna!!!
En við vorum ekki búnar að vera lengi í glerhúsinu þegar hún Ebba litla mætir á staðin til að fá sér ís, er ennþá pínu bólgin...hehehhe:lol:. Ég get samt svarið það að við erum með innbyggðan radar ég meina engin smá tilviljun.
Svo fórum við að sjálfsögðu að tala um árshátíðina sem er á næsta leiti og ekki seinna en vænna að fara að huga að því í hverju maður ætlar að vera!!!!8|
Við dustuðum líka rykið af minningunum frá því í fyrra og guð hvað við hlógum mikið af þessu, ekkert smá gaman og ekkert smá mikið DRAMA8) en hvað er perlupartý án þess???? ég bara spyr...uuuuuhhhhh ekki mikið partý held ég bara. En við erum sem sé komnar í fílinginn og ætlum að mála bæinn í öllum litum þetta kvöld, svo strákar passið ykkur bara 8)

P.S. Ebba kl. hvað eigum við að mæta til þín????


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.04.2006 18:16:25 / Eva Dögg

ljósálfur

Jæja þá ætla ég að láta undan og blogga :) þótt að eini sem kíkji á þessa síðu er ábbyggilega við meðlimir perluskvísa og Annel :)

Það er lítið að gerast hjá mér þessa dagana , klikkað að gerast í skólanum, læri alla daga. Ég fór í endajaxlatöku á fimmtudaginn og það var hreinn viðbjóður , að heyra hvernig er verið að bora í tönnina, kippa henni upp og öll þau hljóð eru ekkert voðalega spennandi, síðan þurfti að deyfa mig svo mikið því að bregst eitthvað seinlega við deyfingunni, svo þegar ég var búin í aðgerðinni þá byrjuðu eiginlega allar þessar deyfingar að virka ;) mamma hló endalaust að mér enda var ég líka eins og ég veit ekki hvað...gat alveg engann veginn talað og tungan mín lafði þvílíkt út og slefandi eins og ég veit ekki hvað...en núna lít ég út eins og hulk, alveg heavy bólgin og get ekki borðað neitt nema súpu og ís, langar mest til þess að borða risa steik og bjór með :)

En já árshátíðin er að nálgast og ætla ekki allir annars að fara ;) ég ætla allavega að skella mér og það verður forvitnilegt að sjá í  hvernig búningum fólk ætlar að vera :) þemað er kvikmynda og disco , stuuð en hvað segiði stelpur um að hittast um páskana og fá okkur öllara og kíkja í bæinn og svona, ég held að ég verði ein heima eitthvað um páskana svo við gætum verið hérna heima hjá mér :) en allavega endilega verið duglegri að blogga og reynum að halda uppi þessari síðu ;)

Kv. Eva Dögg


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 08:59:44 / Vigdís

Velkomin heim Rori!!!!

Jæja held það sé alveg komin tími á að skrifa nokkrar línur þar sem við stelpurnar erum ekkert of duglegar :^)


En eins og kannski margir hafa lesið á blogginu hjá henni Rori okkar þá er gellan bara komin heim!!!!! Og þó að það sé leiðinlegt að segja það er ég bara ánægð, var farin að sakna hennar alveg rosalega mikið, heheheheh.
En skvísur ég var að spá hvort við ættum ekki að drífa okkur á kaffi hús þar sem hún rori er komin heim og slúðra svolítið.....8)

Velkomin heim elskan!!!:haha:

En smá rugl frá mér, ég var á hesta sýningu um síðustu helgi. Var í svona ABBA show-i og það var nú bara ekkert smá gaman. Hef samt aldrei verið klædd í jafn mikið af pallíettum og glas dóti ever!!!!v:haha:

Betty


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.02.2006 20:13:28 / Vigdís

Lán í óláni

Jæja sælt veri fólkið! Ég er búin að vera heima í um sólahring núna og má varla hreifa mig og þá datt mér í hug að blogga aðeins þar sem maður gerir ekki nóg af því þessa daganna. En ég hef alla vegana eitthvað til að skrifa um núna. Jæja sagan er þannig að eins og allir vita á ég fullt af hestum og hef ósjaldan dottið af baki sem gerðist einmitt fyrir mig núna í gær. Þetta skipti var þó aðeins öðruvísi en þau fyrri þar sem ég hélt ég væri að drepast þar sem ég náði ekki andanum í svona 30 sek eftir að ég datt sem er ekki góð tilfinning. Svo komu tveir menn að mér og voru að reyna að spurja hvort það væri allt í lagi með mér og ég kom varla upp orði vegna súrefnisskorts, þeir urður að lyfta mér á fætur og inn í hesthús, það var ekkert smá vont ég hélt virkilega að þetta væri mitt síðasta. En svo skemmtilega vildi til að pabbi var ekki langt frá hesthúsinu þegar ég hringdi í hann og pabbi fór með mig upp á slysó til að láta að tékka á mér þar sem ég var að drepast í bakinu. Læknirinn skoðaði mig og sendi mig svo upp í röngen, gaurinn sem fór með mig upp var ekkert smá sætur mér leið ekkert smá illa öll út grátin og svona skemmtilegt. En svo þegar ég var búin sagði konan í röngen að læknirinn mundi skoða myndirnar niðri og segja mér frá þessu, ég fattaði þá að eitthvað var að því annars hefði hún bara sagt að það væri allt í lagi. Svo kom læknirinn og sagði: "þú er hryggbrotin" og þá í stutta stund hélt ég að hann væri að djóka og að ég væri í svona falinn myndavél og guð ég óska þess núna. En allavegana þá sprakk upp úr einum hryggjarliðnum hjá mér og ég má ekki koma nálægt hesti næstu 4-6 vikurnar sem er ekkert smá hræðilegt fyrir mig og í augnarblikinu þá er ég á það sterkum lyfjum að ég veit ekki hvað ég heiti. Og núna á meðan ég er heima hjá mér er ég að missa af árshátíð Verzló sem er ömurlegt, ég var svo svekkt afhverju gat þetta ekki gerst á morgun ég meina þá hefði ég allaveganna ekki misst af árshátíðinni. 8) Betty

» 5 hafa sagt sína skoðun

20.01.2006 19:41:40 / Rori

Nýtt blogg

hæhæ, þá er maður loksins komin til Noregs. Strax komin með alveg gífurlega mikla heimþrá. Ég er búin að setja upp nýtt ferðablogg þar sem ég reyni að blogga eins mikið og ég get. Ég hætti ekki að blogga hérna samt. Kíkið endilega á bloggið.
www.blog.central.is/rori
Látið líka endilega sem flesta vita af því. Bannað að kíkja á síðuna án þess að skrifa annaðhvort í gestabók eða smá línu.

Sakna ykkar
Rori

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.01.2006 14:29:16 / Rori

bye bye birdy

Það er rosalegt þegar hlutir breytast margir í einu. Ég er útskrifuð úr skólanum. Ég fer þangað ekki aftur. Ég er hætt í Perlunni. Það var rosalega sorglegt að læsa dyrunum í síðasta skipti og kveðja fólkið. Ég er að fara að flytja úr landi, flytja út frá mömmu og pabba, til Noregs. Allt þetta á einum mánuði. Stelpur, ég á eftir að sakna ykkar svo mikið. Ég mun reyna að blogga eins mikið og ég get. Segja frá hvað er að ske og svoleiðis. Þið verðið að vera duglegar líka því ég vil vita hvað þið eruð að bralla. Ég mun reyna að stunda netkaffi eins og ég get og vera á msn. Ég tek líka með mér webcameruna mína svo þið getið líka jafnvel séð mig. 8). Við sjáumst aftur í ágúst.

Bless í bili

Rori


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.12.2005 20:28:41 / Vigdís

Bla Bla.....

Sælt veri fólkið!!!

Jæja nú fara jólin að nálgast og allir ornir blankir vegna gjafa kaupa 8|
Ég skellti mér í fótboltann á þriðjudaginn og fannst ekkert smá gaman, þó að ég geti ekki rassgat og það hafi verið hlegið mest af mér :^) ,við eigum bara að taka þetta upp stelpur.
Svona fyrst maður er að þessu rugli þá langar mig að segja TIL HAMINGJU við Rori og Ástrósu með stúdentinn, voruð ekkert smá sætar með húfuna :haha:, hlakkar ekkert smá til að fá eina svona sjálf.......


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.11.2005 22:29:17 / Vigdís

Úps!

Jæja nú er komin tími til að láta heyra eitthvað smá í sér, ekkert smá langt síðan að ég skrifaði eitthvað. En já ég frétti að það hefði verið rosa stuð í kveðju partýinu hennar Tinnu 8) (þó að ég hafi nú bara gert skandal og ekki látið sjá mig). En aftur í raunveruleikann, nú nálgast jólaprófin óðfluga og þýðir það í bókstaflegri merkingu að við sjáum ekki dagsins ljós fyrr en þeim er lokið, ekki það að það sé neitt mikil sól:D (hvað er málið sunna ekki að standa þig í þessu).
Svo þegar þeim lýkur þá tökum við þetta með stæl, ég meina hversu oft á ári fá stelpur séns á að versla óendanlega mikið án þess að þurfa að finna upp eitthverja afsökun og þetta er nú líka allt handa öðrum þannig að okkur líður ekkert smá vel á eftir:haha:.
Mér finnst að við ættum að skipuleggja smá verslunarferð að prófum loknum til að hafa smá stemmingu í þessu og bara að koma "hópnum" saman, ég meina hvað gæti verið betra (uuuu fara á fillerí)8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.10.2005 14:24:33 / Rori

Hi guys

Jæja stelpur, takk fyrir síðustu helgi. Var ekkert smá gaman. Malla þú ert nú meiri villingurinn þegar þú ert í glasi....hehe, ég ætti nú kannski ekki að segja mikið. :haha: Ég er núna lasin heima, fór ekki í skólann í dag :-(. Það er fúlt að vera veik. jæja vonandi getum við djammað einhvern tímann aftur, þá kannski allar með. Því fleiri því betra.

» 8 hafa sagt sína skoðun

22.10.2005 16:33:54 / Marlena

Here we come.........

Jæja skvísur! Hugsanlega eru þið allar í stuði,því hver myndi ekki vera í stuði ef um perluskvísu djamm er að ræða.8)...
ÞVI MIÐUR það er ekki hægt að byrja(djussa)heima hjá mér
(smá vesen með kallinn)
En þið eruð örugglega  með eitthvað...
en já,,,hvar eigum við að hittast?
Einhverjar hugmyndir???
Ps: þegar þið ákveðið staðinn please let me know....:lol:
Kv Marlena

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.10.2005 19:23:35 / Marlena

hello

það er búið að vera mikið að gera hjá mér bæði í skólanum og í vinnuni....
miss you all very much !!!
Stelpur eigum við ekki að plana eitthvað djamm???
Eigum við ekki að djamma næstu helgi???
PS: Rori ég ætlaði vist aðæfa með þér en sorry ég er akkurat að vinna á þessum tíma ....:S

» 6 hafa sagt sína skoðun

06.10.2005 22:18:42 / Vigdís

Pælingar

Jæja það er svo langt síðan ég skrifaði eitthvað að ég veit varla hvar ég á að byrja. En allavegana síðustu helgi tók ég upp á því að fara í stóðréttir fyrir norðan og var nú bara ekkert smá gaman innan um allt þetta sveitalið. Allir voru vaktir snemma á laugardeginum og drifið út í rétt að horfa á þessa vitleysu sem er nú raunar skemmtileg þegar maður pælir í þessu og svo að sjálfsögðu eru allir með fullt í pelanum sínum og allir að leyfa öllum að smakka hjá sér(=allir á skallanum:D). Eftir réttirnar fóru allir heim að gera sig tilbúna undir ballið, enda þekkti maður ekki nokkurn mann frá því fyrr um daginn lol :!:. Ballið var bara hrein geðveiki staðurinn var svo troðin að það hefði verið hægt að fela fíl þarna án nokkurs vanda, stemmingin var líka alveg rafmögnuð þar sem allir voru á dansgólfinu og sungu svo hátt að ekki heyrðist í söngvaranum og hefði enginn tekið eftir því ef hann hefði bara farið8).
Eftir þetta sakna ég mikið gömlu perlu djammana guð þetta hljómar allt svo eitthvað eins og í gömlum draumi sem aldrei var raunverulegur........8|
En ég legg til að við stöllur hittumst á föstudagskvöldið og málum bæinn rauðan með eða á strákana upp í perlu enda eru þeir nú flestir farnir hvort eð er......:$

Betty


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4